Undri penslasápa  1 líter

Undri penslasápa 1 líter

Verð 1.295 kr
Translation missing: en.products.general.unit_price  Translation missing: en.general.accessibility.unit_price_separator 
Verð með VSK sendingarkostnaður er reiknaður út þegar gegnið er frá pöntun.

Penslasápa er ætluð til að þvo olíumálningu úr penslum og öðrum málningaráhöldum. Sápan vinnur vel á olíu, fitu og tjöru og vinnur þar af leiðandi vel á óþornuðu límkítti svo sem Soudaflex, Sikaflex o.fl. teg. svo eitthvað sé nefnt. Einnig er vitað til að Undri penslasápa hefur verið notuð til þvotta á ullarfatnaði, gólfteppum og fatnaði sem hefur fengið í sig olíumálningu, tyggigúmmí, kertavax, og harpix (notað í handbolta) o.fl. Við þvott á málningaráhöldum, svo sem penslum er pensilinn gegnvættur í efninu þannig að hann mettist allur og sápan látin vinna svo litla stund. Síðan er hann skolaður vel, helst undir rennandi vatni..

UNDRI penslasápa - helstu kostir

Auðveldara og fljótlegra að þrífa málningu úr penslum.
Það þarf ekki að margskola pensilinn undir vatni.
Gufar ekki upp og þar af leiðandi:
Nýtist 5-10 sinnum lengur.
Ódýrari, því það má margnota sama löginn.
Notendur anda ekki að sér eiturefnum.
Hárin á penslunum ýfast ekki þó hann sé margþveginn með efninu.
Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum.
Já, það er satt, ef harðnaður pensill er látinn liggja í leginum 24 klst.
verður pensillinn nothæfur og mjúkur aftur.
Umhverfisvænn:
Því til staðfestingar ber penslasápan norræna umhverfismerkið.
UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunni.

Undri er vistvænn

  • UNDRI inniheldur ekki komplexbindandi efni sem geta verið skaðleg fyrir náttúruna.
  • UNDRI er auðniðurbrjótanlegur í náttúrunni og stenst lífniðurbrotsmælingu 301 B (OECD).
  • UNDRI er örþeyta sem inniheldur sojaprópýlester (unnin úr sojabaunum) blandað ethoxýlatsápu og og vatni.

Leiðbeiningar

UNDRI penslasápa er ætluð til þrifa á olíumálningu úr penslum og öðrum málningaráhöldum. Fjarlægir einnig óþornað kýtti. Notið efnið óblandað.

  • Hellið hæfilegu magni í ílát til að gegnvæta pensilinn.
  • Núið penslinum í sápunni.
  • Skolið með vatni.
  • Ef penslill hefur harðnað, látið þá liggja í leginum í 1-2 daga og skolið.

Innihaldslýsing

Sojaprópýonat, vatn, alkóhóletoxýlat og própanól.